Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga
LIFEYRISSJÓÐIR FLÝTA FYRIR AFNÁMI GJALDEYRISHAFTA
ÁRSREIKNINGUR LÍFEYRISSJÓÐS STARFSMANNA SVEITARFÉLAGA 2009
Hægt er að nálgast ársreikning LSS fyrir árið 2009 hér
ÁRSFUNDUR LÍFEYRISSJÓÐS STARFSMANNA SVEITARFÉLAGA 2010
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga verður haldinn þriðjudaginn 2. júní nk., kl. 17.00 í fundarsal BSRB að Grettisgötu 89, 101 Reykjavík.
Dagskrá:
Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins
Önnur mál löglega upp borin
Allir sjóðfélagar sem og fulltrúar aðildarfélaga BSRB, BHM og KÍ svo og launagreiðendur eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta.
Fundargögn verða afhent á fundarstað fyrir setningu fundarins.
LÍFEYRISSJÓÐIR DRAGA LÆRDÓM AF HRUNINU
Nefnd, sem Landssamtök lífeyrissjóða skipuðu í maí 2009 til að fjalla um hvað „lífeyrissjóðir gætu lært af þeim fjárhagslegu áföllum sem dunið hafa yfir íslenskt þjóðfélag, allt frá hruni viðskiptabankanna þriggja í byrjun október 2008“, leggur til breytingar á viðskiptaháttum á verðbréfamarkaði, regluverki og starfsumhverfi lífeyrissjóða. Nefndin kynnti skýrslu sína, Lærdóm lífeyrissjóða af hruninu 2008-2009, fyrir 80-90 fulltrúum lífeyrissjóða á fundi á Grand hóteli í Reykjavík í apríl sl. (nánar)
UPPLÝSINGAR FYRIR SKATTFRAMTÖL
Lífeyrisþegar eru hvattir til að bera saman upplýsingar á launamiðum og upplýsingar á framtali og hafa samband við sjóðinn ef það stemmir ekki.
Lán frá LsRb og LSS eru forskráð á sundurliðunarblaði með skattframtali til hagræðingar.Ný lán til íbúðarkaupa þarf sérstaklega að færa inn í skattframtalið, þar sem ekki er hægt að færa þau inn fyrirfram heldur verða lántakendur að ákveða hvernig þau skuli færð inn í framtalið svo rétt sé.
BREYTINGAR Á SKATTLAGNINGU Á ÁRINU 2010
Í desember síðastliðnum samþykkti Alþingi breytingar á lögum um tekjuskatt.
Frá 1.1.2010 er tekjuskatti skipt í 3 þrep. Það er á ábyrgð hvers lífeyrisþega að tilkynna í hvaða
skattþrepi tekjuskattsgreiðslur eiga að vera. (nánar)
SEXTÁN LÍFEYRISSJÓÐIR STOFNA FRAMTAKSSJÓÐ ÍSLANDS
Þann 8. desember stofnuðu fulltrúar sextán lífeyrissjóða, innan vébanda Landssamtaka lífeyrissjóða, formlega Framtakssjóð Íslands, nýtt fjárfestingarfélag sem ætlað er að taka þátt í og móta fjárhagslega og rekstrarlega endurreisn íslensks atvinnulífs í kjölfar falls fjármálakerfisins. (nánar)
GREIÐSLUJÖFNUN VERÐTRYGGÐRA FASTEIGNAVEÐLÁNA
Með lögum sem samþykkt voru á Alþingi 23. október sl. var ákveðið að greiðslujöfnun verði sett sjálfkrafa á öll verðtryggð lán með veði í fasteign frá og með gjalddaga í desember 2009. Með greiðslujöfnun mun greiðslubyrði lána verða lægri um skeið og því mögulega henta betur greiðslugetu margra í dag. Til lengri tíma litið getur greiðslujöfnun þó leitt til aukins kostnaðar vegna vaxta og verðbóta. (nánar)
TÍMABUNDIN HEIMILD TIL FYRIRFRAMGREIÐSLU Á SÉREIGNARSPARNAÐI
Alþingi hefur samþykkt lög sem heimila þeim er eiga frjálsan séreignarsparnað að leysa út allt að 1. milljón króna, samanlagt úr sjóðum allra vörsluaðila. (nánar)
ENDURMAT EIGNA Í SÉREIGNALEIÐUM OG FJÁRFESTINGARLEIÐIR OPNAÐAR Á NÝ
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga hefur lokið endurmati eigna í séreignarleiðum og því hafa fjárfestingarleiðir sjóðsins verið opnaðar að nýju. (nánar)
NÝ FJÁRFESTINGARSTEFNA Í SÉREIGN
Með hagsmuni sjóðfélaga að leiðarljósi og að teknu tillit til efnahagsástandsins var ákveðið að endurskoða fjárfestingarstefnu leiða 1 og 2 í séreign. (nánar)
RÁÐSTÖFUN FRAMTÍÐARIÐGJALDA
Eins og kom fram á heimasíðu LSS þann 16. október sl. hefur öllum iðgjöldum verið ráðstafað inná innlánsreikning sem tilheyrir hverri fjárfestingarleið sem ber vexti og er að fullu tryggður með ríkisábyrgð. (nánar)
LÍFEYRISSPARNAÐUR
Lífeyrissparnaður er einn mikilvægasti sparnaður einstaklinga. Með lífeyrissparnaði leggjum við grunn að fjárhagslegu öryggi okkar í ellinni. Um leið bætum við öryggi maka okkar og barna til að mæta óvæntum áföllum eða við eigið andlát.
LSS starfar í þremur deildum í þeim tilgangi að tryggja sjóðfélögum sem besta valkosti í lífeyrismálum. Sjóðurinn skiptist í tvær sameignardeildir, almenna deild og valdeild, auk þess séreignardeild. Sjóðfélagar geta valið hvorri sameignardeildinni þeir vilja tilheyra. Þar fyrir utan eru allir sjóðfélagar hvattir til að ávaxta viðbótarsparnað í séreignardeildinni.
VIÐBÓTARSPARNAÐUR
Í samanburði við annan sparnað er viðbótarsparnaður í séreignarsjóð mjög hagstæður. Lífeyrissparnaður er skattalega hagkvæmur því inneign og lögbundið iðgjald er hvorki eignaskatts- né fjármagnstekju-skattsskyld. Hins vegar er lífeyrir framtals- og tekjuskattsskyldur þegar hann kemur til útborgunar en þá kemur persónuafsláttur einstaklinga á móti til frádráttar skatti. Skoða nánar
Fréttir
5. Ágúst 2010
Breytilegir vextir lækka niður í 4,2%
5. Júlí 2010
Breytilegir vextir lækka
14. Júní 2010
Yfirlit iðgjaldagreiðsla sent sjóðfélögum
Leit
Mynd

Skrifstofa LSS
Sigtúni 42
105 Reykjavík
Sími: 540 0700
Bréfsími: 540 0701
Netfang: lss(hjá)lss.is











